Nokia 2630 - Öryggisatri²i

background image

Öryggisatriði

Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur
það verið hættulegt eða varðað við lög. Lesa skal alla
notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.

ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU

Ekki má kveikja á tækinu þar sem notkun
þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem hún
kann að valda truflunum eða hættu.

UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR

Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð
skal hafa hendur frjálsar til að stýra ökutækinu
við akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í
akstri.

TRUFLUN

Öll þráðlaus tæki geta verið næm fyrir
truflunum, sem getur haft áhrif á virkni þeirra.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM Á SJÚKRASTOFNUNUM

Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á
tækinu nálægt lækningabúnaði.

background image

Ö r y g g i s a t r i ð i

8

HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM Í FLUGVÉLUM

Virða skal allar takmarkanir. Þráðlaus tæki geta
valdið truflunum í flugvélum.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN ELDSNEYTI ER
TEKIÐ

Ekki nota tækið nærri eldsneytisdælu. Notist
ekki í námunda við eldsneyti eða sterk efni.

SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM VERIÐ ER AÐ
SPRENGJA

Virða skal allar takmarkanir. Ekki nota tækið þar
sem verið er að sprengja.

NOTIST AF SKYNSEMI

Notist aðeins í þeim stöðum sem lýst er í
leiðbeiningum með vörunni. Forðast skal óþarfa
snertingu við loftnetið.

VIÐURKENND ÞJÓNUSTA

Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða
gera við þessa vöru.

AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR

Aðeins má nota samþykkta aukahluti og
rafhlöður. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.

background image

Ö r y g g i s a t r i ð i

9

VATNSHELDNI

Símtækið er ekki vatnshelt. Halda skal því þurru.

ÖRYGGISAFRIT

Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá
yfir allar mikilvægar upplýsingar sem geymdar
eru í símtækinu.

TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI

Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa
notendahandbók með því vandlega, einkum
upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman
ósamhæf tæki.

NEYÐARSÍMTÖL

Tryggja skal að kveikt sé á símaaðgerðum
tækisins og þær séu virkar. Ýta skal á
endatakkann eins oft og þarf til að hreinsa
skjáinn og fara aftur í biðstöðu. Sláðu inn
neyðarnúmerið og ýttu á hringitakkann. Gefa
skal upp staðarákvörðun. Ekki má slíta símtali
fyrr en að fengnu leyfi til þess.

background image

Ö r y g g i s a t r i ð i

10

Um tækið

Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er samþykkt
til notkunnar í GSM 900 og 1800 símkerfunum.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar um símkerfi.

Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða
staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra,
þ.m.t. höfundarrétt.

Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé að
afrita, breyta, flytja eða framsenda myndir, tónlist (þ.m.t.
hringitóna) og annað efni.

Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki,
annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu.
Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun
þráðlausra tækja getur valdið truflun eða hættu.

Sérþjónusta

Til að hægt sé að nota símann verður áskrift að
þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að vera fyrir hendi.
Margir af valkostum símans flokkast undir sérþjónustu.
Ekki er hægt að nota þessa valkosti í öllum símkerfum.

background image

Ö r y g g i s a t r i ð i

11

Í öðrum símkerfum kann jafnframt að vera farið fram á
sérstaka skráningu fyrir þessari þjónustu. Leiðbeiningar
ásamt upplýsingum um gjald fyrir þjónustuna fást hjá
þjónustuveitu. Sum símkerfi kunna að hafa takmarkanir
sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu. Sum
símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi og þjónustu.

Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir
væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er
birtast þær ekki í valmynd tækisins. Tækið kann einnig að
hafa verið sérstillt, t.d. kann heitum, röð og táknum
valmynda að hafa verið breytt. Þjónustuveitan gefur nánari
upplýsingar.

Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL)
sem keyra á TCP/IP samskiptareglum. Sumar aðgerðir
símtækisins, eins og margmiðlunarskilaboðaþjónusta
(SMS), fjarstilling og aðgangur að interneti með vafranum,
krefjast netstuðnings fyrir þessa tækni.

background image

A l m e n n a r u p p l ý s i n g a r

12