
Hringt og tekið á móti símtali
Símtal er hringt með því að slá inn símanúmer ásamt
svæðisnúmeri, ef með þarf. Einnig skal velja
landsnúmer, ef þörf er á. Ýttu á hringitakkann til að
hringja í símanúmerið. Ýttu skruntakkanum til hægri
til að auka hljóðstyrk í eyrnatóli meðan á símtali
stendur og til vinstri til að minnka hann.
Símtali er svarað er á með því að ýta á hringitakkann.
Til að hafna símtali án þess að svara því skal styðja á
hætta-takkann.
■