 
Símtalaskrá
Síminn skráir ósvöruð, móttekin og 
hringd símtöl ef símafyrirtækið styður 
það, kveikt er á símanum og hann innan 
þjónustusvæðis.
Hægt er að skoða dagsetningu og tíma símtalsins, 
breyta eða eyða símanúmerinu af listanum, vista 
númer í Tengiliðir eða senda skilaboð á númerið. 
Upplýsingar um hringingar eru skoðaðar með því að 
velja Valmynd > Notkunarskrá > Ósvöruð símtöl, 
Móttekin símtöl eða Hringd símtöl. Til að skoða nýleg 
ósvöruð og móttekin símtöl og hringd símtöl eftir 
tímaröð er valið Símtalaskrá. Tengiliðir sem þú sendir 
nýlega skilaboð eru skoðaðir með því að velja 
Viðtakendur skilaboða.
 
V a l m y n d i r s í m a n s
42
Veldu Valmynd > Notkunarskrá > Lengd símtals, 
Gagnamælir pakkagagna eða Telj. pakkagagnateng. til 
að sjá áætlaðar upplýsingar um nýlegar gagnasendingar.
Ath.: Reikningar þjónustuveitunnar fyrir símtöl 
og þjónustu kunna að vera breytilegir eftir 
eiginleikum símkerfisins, sléttun fjárhæða við 
gerð reikninga, sköttum og öðru slíku.
Listum yfir nýleg símtöl er eytt með því að velja 
Hreinsa skrár. Ekki er hægt að afturkalla þetta val.
■