 
Hleðsla og afhleðsla
Tækið gengur fyrir rafhlöðu sem hægt er að endurhlaða. 
Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð 
sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér. Þegar 
hleðslutími er orðinn greinilega styttri en eðlilegt getur 
talist, þarf að skipta um rafhlöðu. Aðeins skal nota 
rafhlöður sem samþykktar eru af Nokia og aðeins skal 
endurhlaða rafhlöðu með hleðslutækjum sem Nokia hefur 
samþykkt til notkunar með þessu tæki.
Ef verið er að nota vararafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef 
rafhlaðan hefur ekki verið notuð í langan tíma, kann að vera 
nauðsynlegt að tengja hleðslutækið og aftengja það síðan 
og tengja aftur til að hefja hleðslu á rafhlöðunni.
Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu 
og tækið þegar það er ekki í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna 
rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla 
getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar 
hleðslunni smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.
 
U p p l ý s i n g a r u m r a f h l ö ð u
69
Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til 
hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð. 
Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki eða rafhlöðu.
Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í rafhlöðunni. 
Skammhlauðp getur orðið fyrir slysni þegar málmhlutur, svo 
sem mynt, bréfaklemma eða penni veldur beinni tengingu 
milli jákvæðu (+) og neikvæðu (-) skautanna á rafhlöðunni. 
(Þau líta út eins og málmrendur á rafhlöðunni.) Til dæmis 
getur þetta gerst þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. 
Skammhlaup milli skautanna getur valdið skemmdum á 
rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur tengingunni.
Ef rafhlaðan er skilin eftir í miklum hitum eða kuldum, til 
dæmis í lokuðum bíl að sumar- eða vetrarlagi, dregur það úr 
afkastagetu hennar og endingu. Æskilegast er að rafhlaðan 
sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C til 25°C (frá 59°F 
til 77°F). Tæki með of heitri eða of kaldri rafhlöðu getur 
orðið óvirkt um tíma, þó svo að rafhlaðan sé fullhlaðin. 
Einkum hefur mikið frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.
 
U p p l ý s i n g a r u m r a f h l ö ð u
70
Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. 
Rafhlöður geta einnig sprungið ef þær skemmast. Farga skal 
rafhlöðum í samræmi við staðbundnar reglugerðir. Skila 
skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja 
þeim með heimilisúrgangi.
Ekki skal taka sundur eða tæta rafhlöður. Ef rafhlaða lekur 
má vökvi hennar ekki komast í snertingu við húð eða augu. 
Ef slíkt kemur fyrir skal skola húð eða augu umsvifalaust 
með vatni, eða leita til læknis.
■