 
Umhirða og viðhald
Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara 
þarf gætilega með. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við 
að halda tækinu í ábyrgð.
•
Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns 
vökvar geta innihaldið steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef 
tækið blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa því að 
þorna alveg áður en rafhlaða er sett í aftur.
•
Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né 
geyma það þar. Færanlegu hlutirnir í því geta skemmst.
•
Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur 
dregið úr endingu rafeindatækja, skemmt rafhlöður og 
undið eða brætt sum plastefni.
•
Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar 
upp að eðlilegu hitastigi getur raki myndast innan í því 
og hann getur skemmt rafrásaspjöld.
•
Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er í 
þessari handbók.
 
U m h i r ð a o g v i ð h a l d
75
•
Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista 
það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri rafrásarspjöld 
og fíngerðan búnað.
•
Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða 
sterk hreinsiefni til þess að þrífa tækið.
•
Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega 
hluti tækisins og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.
•
Nota skal mjúkan, hreinan, þurran klút til að hreinsa 
linsur, líkt og myndavélar-, fjarlægðarnema- og 
ljósnemalinsur.
•
Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum eða 
samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt loftnet, breytingar á 
þeim eða viðbætur, gætu skemmt tækið og kunna að 
brjóta í bága við ákvæði laga um senditæki.
•
Nota skal hleðslutæki innandyra.
•
Alltaf skal taka öryggisafrit af gögnum sem ætlunin er 
að halda, t.d. tengiliðum og dagbókaratriðum.
•
Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja þannig 
hámarksafköst með því að slökkva á tækinu og fjarlægja 
rafhlöðu þess.
 
V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r
76
Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið, rafhlöðuna, 
hleðslutækið eða aðra aukahluti. Ef tæki vinnur ekki rétt 
skal fara með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila til 
lagfæringar.
Merkið, sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu, merkir að 
innan Evrópusambandsins verði að fara með vöruna 
á sérstaka staði til förgunar að líftíma hennar 
liðnum. Ekki skal fleygja þessum vörum með 
heimilisúrgangi. Nánari upplýsingar er að finna í Eco-
yfirlýsingu vörunnar eða landaupplýsingum á 
www.nokia.com.