 
Viðbótaröryggisupplýsingar
■
Lítil börn
Í tækinu og aukahlutum þess geta verið litlir hlutir. Þá skal 
geyma þar sem lítil börn ná ekki til.
 
V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r
77
■
Vinnuumhverfi
Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna 
(RF) við notkun annaðhvort í hefðbundinni stöðu við eyrað 
eða þegar það er haft að minnsta kosti 2,2 sm (7/8 tommur) 
frá líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er notað 
þegar tækið er borið á líkamanum við notkun ætti slíkur 
búnaður ekki að innihalda málm og halda ætti tækinu að 
minnsta kosti í þeirri fjarlægð frá líkamanum sem nefnd var 
hér á undan. Svo að hægt sé að senda gagnaskrár eða boð 
þarf þetta tæki góða tengingu við símkerfið. Í sumum 
tilvikum getur sending gagna eða boða tafist þar til slík 
tenging er tiltæk. Tryggja skal að ofangreindum 
fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt þar til sendingu er lokið.
Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist 
að tækinu. Ekki má geyma kreditkort eða aðra 
segulmagnaða hluti með geymsluminni nálægt tækinu því 
upplýsingar sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.
 
V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r
78
■
Lækningatæki
Notkun búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur, þar með 
talin notkun þráðlausra síma, kann að trufla virkni 
lækningatækja sem ekki eru nægilega vel varin. Hafa skal 
samband við lækni eða framleiðanda lækningatækisins til 
þess að komast að því hvort það sé nægilega vel varið fyrir 
utanaðkomandi útvarpsbylgjum eða til að afla nánari 
upplýsinga. Slökkva skal á tækinu í námunda við 
heilsugæslustöðvar ef auglýstar reglugerðir þess efnis 
kveða á um að það sé gert. Sjúkrastofnanir eða 
heilsugæslustöðvar kunna að nota búnað sem getur verið 
næmur fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum.
Ígrædd lækningatæki
Framleiðendur lækningatækja mæla með því að 15,3 sm 
(6 tommu) lágmarksbil sé haft á milli þráðlauss tækis og 
ígrædds lækningabúnaðar, eins og gangráðs eða ígrædds 
hjartarafstuðstækis til þess að komist sé hjá hugsanlegri 
truflun í lækningabúnaðinum. Einstaklingar með slíkan 
búnað ættu:
 
V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r
79
•
Alltaf að halda þráðlausa tækinu í meira en 15,3 sm (6 
tommu) fjarlægð frá lækningabúnaðinum þegar kveikt 
er á þráðlausa tækinu.
•
Ekki að ganga með þráðlausa tækið í brjóstvasa
•
Hafa þráðlausa tækið við eyrað sem er fjær 
lækningabúnaðinum til að draga úr líkum á truflunum.
•
Ef grunur leikur á að truflun skal slökkva á þráðlausa 
tækinu tafarlaust.
•
Lesið og fylgið leiðbeiningum frá framleiðanda ígrædda 
lækningabúnaðarins.
Ef þú hefur spurningar um notkun þráðlausa tækisins með 
ígræddum lækningabúnaði skaltu hafa samband við 
heilbrigðisstarfsfólk.
Heyrnartæki
Tiltekin stafræn þráðlaus tæki geta truflað sum 
heyrnartæki. Ef truflun verður skal leita til þjónustuaðila.
 
V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r
80
■
Ökutæki
Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í 
vélknúnum ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett eða ekki 
nægilega varin, svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf, 
rafeindastýrð hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrð 
hraðakerfi og loftpúðakerfi. Nánari upplýsingar má fá hjá 
framleiðanda bílsins eða búnaðarins sem bætt hefur verið 
við eða fulltrúa hans.
Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja 
tækið upp í ökutæki. Gölluð uppsetning eða viðgerð kann að 
valda hættu og ógilda hvers kyns ábyrgð sem kann að vera á 
tækinu. Ganga skal reglulega úr skugga um að allur 
þráðlaus tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur og 
vinni rétt. Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva, 
lofttegundir eða sprengifim efni í sama rými og tækið, hluta 
úr því eða aukahluti með því. Ef ökutæki er búið loftpúða 
skal hafa hugfast að loftpúðar blásast út af miklum krafti. 
Ekki má setja hluti, þar með talinn uppsettan eða 
færanlegan þráðlausan búnað, á svæðið yfir loftpúðanum 
eða á útþenslusvið loftpúðans. Ef þráðlaus búnaður í bíl er 
illa settur upp og loftpúðinn þenst út getur slíkt orsakað 
alvarleg meiðsl.
 
V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r
81
Notkun tækisins meðan á flugi stendur er bönnuð. Slökkva 
skal á tækinu áður en gengið er um borð í flugvél. Notkun 
þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél getur skapað hættu við 
stjórn flugvélarinnar, rofið þráðlaust símasamband og verið 
ólöglegt.
■
Sprengifimt umhverfi
Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta er á 
sprengingum og fara að öllum tilmælum sem sjást á skiltum 
og leiðbeiningum. Sprengifimt andrúmsloft telst vera á 
svæðum þar sem yfirleitt er beðið um að drepið sé á vél 
bifreiðar. Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið 
sprengingu eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel 
dauðsföll. Slökkva skal á símanum á eldsneytisstöðvum, svo 
sem við eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal 
takmarkanir á notkun útvarpsbúnaðar í 
eldsneytisgeymslum, svæðum þar sem geymsla og dreifing 
eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða þar sem verið er 
að sprengja. Svæði þar sem sprengihætta er mikil eru oftast 
auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal eru svæði undir 
þilfari á bátum; svæði þar sem sterk efni eru geymd eða búin 
til flutnings; ökutæki sem nýta fljótandi svartolíugas 
(própan eða bútan) og svæði þar sem í lofti eru efni eða 
agnir, til dæmis korn, ryk eða málmduft.
 
V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r
82
■
Neyðarhringingar
Mikilvægt: Þráðlausir símar, þar á meðal þetta 
tæki, nota útvarpsmerki, þráðlaus kerfi, kapalkerfi 
og notendaforritaðar aðgerðir. Því er ekki hægt 
að tryggja tengingar við hvaða skilyrði sem er. Því skyldi 
aldrei treysta eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða 
bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.
Neyðarsímtal:
1. Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort
nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi.
Í tilteknum símkerfum kann að vera farið fram á að gilt 
SIM-kort sé rétt sett í tækið.
2. Ýttu eins oft á endatakkann til að hreinsa skjáinn og
gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.
3. Opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði er fært
inn. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.
4. Styddu á hringitakkann.
 
V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r
83
Ef ákveðnar aðgerðir eru í notkun þarf ef til vill að gera þær 
óvirkar áður en neyðarsímtal er mögulegt. Nánari 
upplýsingar má fá í þessari handbók eða hjá 
þjónustuveitunni.
Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar 
upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa tækið 
getur verið eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má slíta 
símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.
■
Upplýsingar um vottun (SAR)
Þetta þráðlausa tæki samræmist viðmiðunarreglum um 
áhrif af útvarpsbylgjum.
Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það er 
hannað með tilliti til leyfilegra marka um áhrif af 
útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur mæla 
með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu 
vísindastofnuninni ICNIRP og innihalda öryggismörk sem 
ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri og heilsufari.
 
V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r
84
Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur þráðlausra tækja er 
notuð mælieiningin SAR (Specific Absorption Rate). Efri 
mörk SAR, samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP, eru 2,0 
vött/kílógramm (W/kg) að meðaltali á hver 10 grömm af 
líkamsvef. Mælingar á SAR eru gerðar í hefðbundnum 
notkunarstöðum þegar tækið sendir af mesta leyfða styrk á 
öllum mældum tíðnisviðum. Raunverulegur SAR-styrkur 
tækis í notkun getur verið lægri en hámarksgildið, þar sem 
tækið er hannað til að nota aðeins þann styrk sem þarf til að 
ná sambandi við símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á styrkinn, 
t.d. hversu langt notandinn er frá grunnstöð. Samkvæmt 
viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi fyrir notkun 
tækisins við eyra 0,70 W/kg. 
Notkun aukabúnaðar getur valdið því að SAR-gildið sé 
annað. SAR-gildi kunna að vera breytileg milli landa sökum 
mismunandi upplýsingaskyldu, krafna og tíðnisviðs. 
Viðbótarupplýsingar um SAR má finna í upplýsingum um 
vörur á www.nokia.com